24.11.2007 | 11:03
Góð saga úr bransanum
Frægt fólk er oft beðið um góða sögu úr bransanum og ég ætla ekki að láta mitt eftir liggja og segja ykkur eina góða sögu úr Bingostjóra-bransanum Það nefnilega féll einn dýrlegur gullmoli á síðasta bingokvöldi.
Þegar ég las upp tölurnar, gaf ég öllum stöfunum nafn samviskusamlega til að hafa alveg á hreinu hvaða staf ég væri að tala um, stafirnir hétu sem sagt B=Bjarni, I=Ingi, N=Nonni, G=Gunnar, O=Oddur og ég kallaði alltaf "bé tveir, bjarni tveir" svo ekkert færi nú á milli mála.
Eina umferðina spiluðum við plúsinn, þ.e. "N" niður og miðju röðin þversum, en hann Nonni lét heldur betur á sér standa. Tölurnar í Bjarna, Inga, Gunnari og Oddi komu endalaust og einn og einn Nonni inn á milli, svo seint kom bingóið. Mér varð tíðrætt um hvað stæði lengi á Nonna og held að mér hafi tekist að vera smá fyndin stundum. En það var ekki lengi.
Næstu röð á eftir spiluðum við U, það er "B" niður, neðsta röðin þversum og "O" niður, sem sagt teiknuðum U á spjaldið. Þá lét Nonni sko ekki á sér standa heldur kom hver á fætur öðrum þannig allir voru orðnir dauðleiðir á honum Nonna. Þá gall í góðum manni úti í sal: "Þú þarft nú ekki að misnota hann Nonna þó það hafi staðið á honum áðan".
Eigið góða helgi
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.