26.2.2009 | 08:08
Vestfjarðakvikmynd í Bæjarbíói Hafnarfirði 3. mars
Á þriðjudaginn kl. 20 sýnir Kvikmyndasafnið Vestfjarðakvikmynd Guðlaugs Rósinkranz. Guðlaugur Rósinkranz fyrrum Þjóðleikhússtjóri stóð fyrir töku á myndum á Vestfjörðum í kring um 1950. Í myndinni, sem sennilega er tekin af Kjartani Ó. Bjarnasyni, er víða komið við og sýndar myndir frá ýmsum kaupstöðum, bæjum og menningarstofnunum. Þar má meðal annars sjá unglingaheimilið í Breiðuvík, frá Núpi í Dýrafirði, Héraðsskólanum í Reykjanesi, Kirkjubóli í Bjarnardal, Þingeyri ofl. stöðum.
Frétt úr Fjarðarpóstinum 8. tbl. 27. árg. 2009, Fimmtudagur 26. febrúar.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.