Gestabók
Skrifa í Gestabók
Gestir:
Hæ frænka
Í mínum huga ertu bara alveg frænka mín Pálína, já heimasíðan hjá sveitinni okkar er orðin flott.
Jóhanna Fríða Dalkvist, fös. 2. maí 2008
Hæ Hanna
Hæ Hanna næstum frænka. Var að flækjast á heimasíðu fallegustu sveitar landsins og bjálfaðist til að finna bloggið þitt þar, gaman að sjá til þín, ég sé að fleiri gamlir sveitungar finna þig líka. Kv. Pála á Skaganum.
Pálína Pálsdóttir (Óskráður, IP-tala skráð), þri. 29. apr. 2008
Sveit
Hæ Hanna.Heyrumst.Sendu kveðju til systkina þinna og foreldra og til þín.kv Dóri frá Mýrartungu
Halldór Jóhannsson (Óskráður), mán. 1. jan. 2007
Flott blogg.
Þetta er langflottasta bloggið og má segja að komið sé heim í heiðar dalinn við að lesa bloggið þitt. Haltu þessu áfram!
Þrymur Sveinsson (Óskráður), lau. 11. nóv. 2006
Takk fyrir síðast
Vildi bara segja takk fyrir síðast, við þau ykkar sem voru í Þórsmerkurferðinni. Ég skemmti mér konunglega :o)
Ólína Kristín Jónsdóttir (Óskráður), mið. 16. ágú. 2006
Glæðir...
.. er góður, ekki spurning :o) Spyr samt eins og Klaufhamarinn... er ekkert að frétta?? Nýr Sumarliði er í burðarliðnum, bíðið spennt við lúguna í byrjun ágúst ;o) Langar að segja: kveðja Járn Karl... en held mig bara við: kveðja, Ólína
Ólína Kristín Jónsdóttir (Óskráður), sun. 16. júlí 2006
GOTT HJÁ ÞÉR HANNA !!!!
Sniðugt hjá þér að gera þessa síðu. Ég er alltaf að vinna að kynningu á gömlu sveitinni okkar og það smá mjakast. Ætla að fara og taka myndir af öllum bæjunum og nokkrum fallegum stöðum í Reykhólahreppi í sumar og gefa Reykhólar.is svo það komi myndir af fleiri stöðum en Reykhólum sjálfum. Mér finnst nauðsynlegt að kynna sveitina betur með myndum, myndir segja meira en mörg orð!! Bestu kveðjur, Jóna Magga
Jónína Margrét Arnórsdóttir (Óskráður), mán. 19. júní 2006
Áhugavert
Gaman að sjá greinarnar um Skóga og Reykhóla. Gangi þér vel með bloggsíðuna. Bestu þakkir. Kveðja, Hrafnhildur R.
Hrafnhildur Reynisdóttir (Óskráður), mið. 3. maí 2006
Frábært
Rosalega er þetta sniðugt hjá þér Hanna ég kem sko til með fylgjast með þessari síðu hjá þér/ykkur Kveðja Unnur Ólöf
Unnur Ólöf Halldórsóttir (Óskráður), þri. 2. maí 2006
Heyr heyr
Get ekki skrifað athugasemdir... svo ég segi bara Heyr heyr hér við síðustu færslu. Hélt einmitt að tilgangurinn með félaginu væri að færa alla saman... ekki bara þá sem eru eldri en 65 ;)
Ólína Kristín Jónsdóttir (Óskráður), sun. 30. apr. 2006
frábært framtak:
þett er alveg frábært að geta kíkt á þessa síoðu þegar mann langar að fá fréttir að vestan. Fundurinn var ágætur og eins terturnar.Hanna haltu þessu áfram.Takk Takk.Bless bless. Einar í Borgarnesi
Einar Óskarsson (Óskráður), fim. 27. apr. 2006
Takk fyrir síðuna
Þetta líst mér vel á. Mikið er gaman að fá nýtt og ferskt blóð í starfsemina. Ég hef mætt á flesta aðalfundi síðustu 20 árin og þessi var einn af þeim betri, áhugasamt fólk sem er með hugmyndir og fylgir þeim eftir. Takk fyrir síðuna.
Daníel Hansen (Óskráður), fim. 27. apr. 2006
Gott framtak.
Lýst vel á þessa hugmynd hjá að blogga. Nú er ekki afsökun fyrir okkur hin að vita ekki um eða gleyma atburður hjá félaginu. Kv. Edda G frá Mýrartungu.
Edda G. Guðmundsdóttir (Óskráður), mið. 26. apr. 2006
Frábær síða
Frábært framtak hjá þér Hanna! Einhverra hluta vegna frýs alltaf vafrinn þegar ég skoða athugasemdir þannig að ég get ekki skrifað þar. Gott að þú ert ánægð með Sumarliða ;o) Tek undir það að ég vona að allir verði duglegir að mæta á aðalfundinn. Stjórnin er nefnilega alsæl með alla þessa ungu viðbót og það væri frábært að sjá hana í verki... og með ungu á ég við okkur fólkið á fertugsaldri hehe
Ólína Kristín Jónsdóttir (Óskráður), fim. 20. apr. 2006