15.5.2006 | 22:31
Stund milli stríða
Nóg að gera hjá mér eins og sönnum barðstrendingi sæmir
Sýningin "Perlan Vestfirðir" voru í Perlunni fyrstu helgina í maí. Þar komu um 23.000 manns sem er alveg frábært. Fólk hefur greinilega áhuga á að kynna sér landið. Mér finnst oft eins og vestfirðir verði útundan þegar fólk er að tala um að ferðast um landið, og kannski eru þeir það, en þetta er með fallegustu stöðum á landinu. Kannski er það út af vegunum sem fólk veigrar sér við að fara vestfjarðahringinn, kannski er það bara auðveldara og þægilegra að keyra norður á Akureyri og heim aftur, kannski eru til milljón ástæður fyrir þessu.
Ég er engin undantekning í þessu. Ég hef alltof lítið farið vestar en Bjarkalundur, og alltof lítið vestur að Bjarkalundi, þó á ég ættingja bæði á Reykhólum og vestur á Ísafirði, skamm ég. Ég fór þó vestur í Dýrafjörð eina helgi í fyrra, lenti í besta veðri sem hugsast gat og notaði það til að keyra aðeins um. Fór í fyrsta skipti á Bíldudal, fór inn í Selárdal, í laugina í Reykjafirði, í pottinn í fjörunni við Flókalund og fleira og fleira og þetta var hreint út sagt frábær ferð, þrátt fyrir sprungið dekk og ekki bestu vegi í heimi
Verum dugleg að hvetja fólk til að heimsækja sveitirnar okkar, þó það sé sagt að hverjum þyki sinn fugl fagur, þá fæ ég oft að heyra frá hlutlausum aðilum að sveitin mín sé ein sú fallegasta á landinu, þá verð ég voða voða voða montin og stolt........og skammast mín fyrir að heimsækja hana ekki oftar.
Hafið það gott
kveðjur í bili
Hanna Dalkvist
Athugasemdir
Það er sko bara ekki spurning að Reykhólahreppurinn er sá fallegasti á landinu og þó víðar væri leitað, og þá sérstaklega innsveitin ;o) Verð þó að viðurkenna að Gjáin í Þjórsárdal er fallegasti "einstaki" staðurinn.
Ólína Kristín Jónsdóttir (IP-tala skráð) 17.5.2006 kl. 20:04
maður fær oft að heyra það að þessi sveit sé mjög falleg og einu sinni sagði einn maður við mig sem kom hingað að eftir nokkur ár væri það ekki Mývatn heldur Reykhólasveitin sem væri málið:-)
Björk (IP-tala skráð) 20.5.2006 kl. 14:37
ójá fögur er Hlíðin og ég fer ekki rassgat sagði einhver einhvertíman en kanski var það einhver önnur Hlíð en ekki Barmahlíð.
En þetta er örugglega rétt hjá þér að Vestfyrðirnir eru útundan og ég veit að eitt sinn var ég búin að heira að rútubílstjórar væru búnir að strika yfir Reykhólasveitina sem viðkomustað vegna þess að þar væri svo litla þjónustu að fá en ég tek það fram að það eru mörg mörg ár síðan en ég held að það þurfi enn að bæta þjónustuna og eins á stærra svæði í kring því að það er t.d.á veturnar ekki hægt að komast á klósett eftir kl.18.00 frá Hreðavatni (ég held að það sé opið á veturnar núna , annars er það Baula) og hvar er svo næsta klósett fyrir vestan, ekki í Flókalundi svo það er Patró ,Bíldudalur eða Þingeyri ég held að ég sé ekki að skrökva mikið en vissulega er mikið að skoða á þessu svæði svo að það vantar að fá fólkið til að koma og stoppa .
Áfram Reykhólasveit :-D og Dalabyggð;-D
Herdís Reynisd. (IP-tala skráð) 20.5.2006 kl. 15:24
Þarna felurðu þig þá gæskan hehehe
Birta Dögg (IP-tala skráð) 25.5.2006 kl. 00:12
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.