Sunnudagsbíltúr í Glym á sunnudaginn 6.júlí

Linda_Mundi_og_Steini_maeta_i_Hotel_Glym_a_sunnudaginnKaffihlaðborð, skemmtidagskrá og listaverkauppboð verða í Hótel Glym í Hvalfirði á sunnudaginn, 6. júlí, og rennur öll innkoma dagsins óskipt á styrktarreikning Guðmundar á Finnbogastöðum.  Mundi ætlar að sjálfsögðu að mæta, og fleiri koma úr Árneshreppi.

Staðarhaldarar á Hótel Glym eru Jón Rafn Högnason og Hansína B. Einarsdóttir, sem bæði eru ættuð úr Árneshreppi. Þau hafa rekið Hótel Glym með miklum myndarbrag frá árinu 2001.

Kaffihlaðborðið á sunnudag verður milli 14 og 18 og er þetta frábært tækifæri til að gera allt í senn: Hitta Strandamenn úr öllum áttum, njóta ljúffengra veitinga og skemmtilegrar dagskrár og leggja góðu máli lið.

Hótel Glymur stendur á frábærum útsýnisstað í kjarri vaxinni hlíðinni ofan við Saurbæjarkirkju á Hvalfjarðarströnd, rétt vestan við Ferstiklu. Það tekur um 40 mínútur að keyra frá Reykjavík að Hótel Glym með því að fara Hvalfjarðargöngin en um það bil 1 klukkustund og 10 mínútur að keyra Hvalfjörðinn.

Látið endilega berast meðal Strandamanna og annarra vina Árneshrepps að leiðin liggi í Hvalfjörð á sunnudaginn.

Minni á söfnun Félags Árneshreppsbúa til styrktar Guðmundi Þorsteinssyni á Finnbogastöðum. Reikningsnúmer: 1161-26-001050 Kennitala: 4510892509


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband