Vegna brunans á Finnbogastöðum

 

http://litlihjalli.it.is/frettir/Tilkynning_fra_Felagi_Arneshreppsbua


Mitt framlag til Eurovision

eurovisionÉg er alveg á móti því að við hættum að taka þátt í Eurovision, hvurslags fílupúka-umræða er það? Við stóðum okkur snilldarvel núna og ég get ekki séð annað en allir hafi skemmt sér vel, bæði íslensku þátttakendurnir og íslenskir áhorfendur. Einnig er þetta skemmtilegt tækifæri fyrir íslenskt tónlistarfólk og upplyfting í íslenskri dagskrárgerð.

Til hamingju Ísland Wizard


Halli okkar

Ég varð nú hálf móðguð þegar ég sá "aldraður", Halli sem er svo léttur á fæti sem og í lund og labbaði meðal annars með okkur frá Húsadal yfir í Langadal fyrir tveimur árum InLove

Halli okkar færði Garpsdalskirkju að gjöf nýja áletraða biblíu til minningar um fósturforeldra sína, hjónin Haflínu Guðjónsdóttur og Júlíus Björnsson, sem bjuggu í Garpsdal meira en fjóra áratugi.

Öll fréttin hér


Frétt af Reykhólavefnum

Ákveðið var á aðalfundi Sambands breiðfirskra kvenna (SBK) sl. fimmtudag að efna til dagskrár um skáldkonurnar og tvíburasysturnar Ólínu og Herdísi Andrésdætur, en í næsta mánuði verða 150 ár liðin frá fæðingu þeirra í Flatey á Breiðafirði.

Meira hér

flatey-1


fúll í fimm mínútur ????

baby_crying_cartoon ...það eru nú aðeins meira en fimm mínútur síðan keppnin hér heima kláraðist en mér sýnist hann enn vera fúll LoL
mbl.is Skilja ekki Júróvisjón
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sjö smokka takk

cartoon_main2_full Ég freistast stundum til að kaupa mér kaffi í vinnunni, því kaffið niðri á kaffihúsinu er miklu betra en úr vélinni hér og ég freistaðist núna áðan. Þegar stúlkan er búin að afgreiða mig kemur strákurinn sem var á eftir mér í röðinni og segir við hana "sjö smokka takk". Ég gat nú ekki annað en litið upp við að heyra þetta, af hverju bað hann ekki um einn pakka eða eitthvað, af hverju bað hann um nákvæmlega sjö smokka ??? Ég sá stelpuröðina á eftir honum og áætlaði að þær væru sjö svo þá skildi ég þetta allt saman. Svo leit ég á stúlkuna og þá var hún ekkert að rétta honum sjö smokka, heldur Sviss-Mokka, en en en hvað er eiginlega að henni, heyrir hún eitthvað illa eða... Blush

Áttundi 100 ára vestfirðingurinn

110393_thmb Við vestfirðingar erum harðir í horn að taka sem þetta dæmi sýnir. Jóhanna G. Kristjánsdóttir er áttundi núlifandi vestfirðingurinn sem nær 100 ára aldri. Koma svo krakkar, verðum gömul... Whistling
mbl.is Tvær íslenskar konur fagna aldarafmæli í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Búið ykkur undir húllu-hittinga í haust

inviteNú er að duga eða drepast kæru Barðstrendingar. Við Ólína skipum nefnd sem mun sjá um mánaðarlega hittinga í haust og við stefnum á að byrja strax í september svo það er eins gott að vera í startholunum. Ég kalla þetta húllu-hittinga því það er of mikið að segja húllumhæ en þetta verður jafn gaman Cool 

Við munum láta ykkur vita betur um þetta þegar nær dregur, en "be ready for the irresistible" LoL


Hvað rímar við tungl?

Látra-Björg (sem er þó ekki frá Barðaströnd) hafði svar við því:

Vísa:

Rímmeistarar telja tungl
tíðum kemur á þá bringl.
Lúi er það fyrir liðinn únl
lengi að keipa fiski ingl.

Höfundur:

Björg Einarsdóttir Látra-Björg f.1716 - d.1784

Um höfund:

Kennd við Látra á Látraströnd. Var lengi húskona en förukona á efri árum. Hún orti mikið af lausavísum undir rímnaháttum og hafa ferða- og sveitavísur hennar orðið fleygar. Heimild: Guðrún P. Helgadóttir: Skáldkonur fyrri alda.

Heimild:

Vísnasafn Sigurðar J. Gíslasonar í Héraðsskjalasafni Skagfirðinga.

Tildrög:

Sagt er að þessi vísa hafi verið 20 ár í smíðum áður en Látra Björg botnaði hana.

Tekið af http://skjalasafn.skagafjordur.is/lausavisur/visur.php?VID=8233

 

Látra-Björg fædd 1716 - dáin 1784, ógift og barnlaus.

Látraströnd er afskekkt í Eyjafirði, nú í eyði.

Björg var talin kvenna ferlegust ásýndum, hálslöng og hávaxin, afar há til hnés. Hún var jafnan í sauðsvartri hempu og með mórauða hettu á höfði.

Hún þótti sérlega ókvenleg, sérstaklega þegar hún fór á hestbak.

Björg var vel hagmælt, meinyrt og níðskældin.  Vísur hennar varðveittust í munnlegri geymd og útgefnar eftir dauða. Hún var talin ákvæðaskáld og því betra að reita hana ekki til reiði. Björg stundaði sjósókn á yngri árum og talin hafa kveðið fisk að, þegar lítil var veiði.  Líklegast öfunduð af þeim sem fiskuðu minna.

Björg þótti mjög undarleg, hún vildi aldrei fara í vistir og vera öðrum háð. Hún flakkaði um sveitir og varð hungurmorða á vergangi í móðuharðindunum.


Bæjarnafnavísa frá Bolungarvík

Þessa fann ég á www.vikari.is

Gil og Ós vil ég greina
Geirastaðir hjá.
Má ég ei Miðdal leyna
margir Hanhól sjá.
Tunga og Hlíðar tvær
Tröð er þessu nær,
heilsar margur húsi því
sem heitir Búðarbær.
Gekk ég að Grundarhóli
gisti á höfuðbóli,
Hóll er höfðingjastaður
hár og glergluggaður
sé hann síblessaður
og hans yfirmaður.

höf. ókunnur


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband