12.12.2007 | 23:32
Jólaandi í Vesturbyggð
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.12.2007 | 12:42
Sjónlínan
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 12:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
10.12.2007 | 12:38
Takk fyrir síðast
Flottur dagur í gær, frábært veður og enn betri jólavaka. Gaman að sjá hvað margir mættu þó ég hefði viljað sjá fleiri af "yngri" kynslóðinni. Annars var nánast fullt hús og rosalega gaman. Ég og Ólína lásum upp úr bókum og svo voru sungin jólalög, drukkið besta heita súkkulaði sem ég hef smakkað og borðaðar smákökur. Ekkert stress og allir afslappaðir sem veitir ekki af svona rétt fyrir jól þegar manni finnst umhverfið gjörsamlega við það að fara á hvolf, allir að flýta sér við að kaupa sem mest.
En takk fyrir samveruna í gær, hlakka til að sjá ykkur öll aftur á næsta ári.
Endilega hafið bak við eyrað að láta okkur vita ef þið heyrið af Barðstrendingi sem ætlar að gefa út bók.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 12:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.12.2007 | 12:22
Jólavaka næsta sunnudag
Næsta sunnudag, 9.desember, verður okkar árlega jólavaka í Konnakoti. Við ætlum að byrja klukkan 16:00. Við munum gæða okkur á ljúffengum jólakökum og heitu súkkulaði, hlýða á bráðskemmtilegan upplestur úr bókum og fleira.
Hlakka til að sjá sem flesta, það var vel mætt í fyrra og vonandi verður enn betur mætt núna.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.11.2007 | 21:02
Flott síða
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
28.11.2007 | 12:34
Skemmtileg frétt :)
Hinn eini sanni íslenski fílamaður | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.11.2007 | 21:30
Skemmtileg skilaboð til Patreksfirðinga
Það mættu fleiri lífga upp á grámyglu hversdagsins eins og einhver dularfull kærleiksrík manneskja á Patreksfirði, sjáið http://www.patreksfjordur.is/
Þetta er eitt af skilaboðunum:
Gæt þessa dags
Því gærdagurinn
er draumur
og morgundagurinn
hugboð
sé deginum
í dag vel varið,
mun gærdagurinn
breytast í
verðmæta minningu
og morgundagurinn
í vonarbjarma.
Gæt því vel þessa dags
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 21:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.11.2007 | 14:37
Mjög áhugavert fyrir okkur að vestan
Kíkið á þetta, ég var fljót að panta mér
http://reykholar.is/?i=11&b=3,996&offset=&offsetplace=&expand=
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.11.2007 | 11:03
Góð saga úr bransanum
Frægt fólk er oft beðið um góða sögu úr bransanum og ég ætla ekki að láta mitt eftir liggja og segja ykkur eina góða sögu úr Bingostjóra-bransanum Það nefnilega féll einn dýrlegur gullmoli á síðasta bingokvöldi.
Þegar ég las upp tölurnar, gaf ég öllum stöfunum nafn samviskusamlega til að hafa alveg á hreinu hvaða staf ég væri að tala um, stafirnir hétu sem sagt B=Bjarni, I=Ingi, N=Nonni, G=Gunnar, O=Oddur og ég kallaði alltaf "bé tveir, bjarni tveir" svo ekkert færi nú á milli mála.
Eina umferðina spiluðum við plúsinn, þ.e. "N" niður og miðju röðin þversum, en hann Nonni lét heldur betur á sér standa. Tölurnar í Bjarna, Inga, Gunnari og Oddi komu endalaust og einn og einn Nonni inn á milli, svo seint kom bingóið. Mér varð tíðrætt um hvað stæði lengi á Nonna og held að mér hafi tekist að vera smá fyndin stundum. En það var ekki lengi.
Næstu röð á eftir spiluðum við U, það er "B" niður, neðsta röðin þversum og "O" niður, sem sagt teiknuðum U á spjaldið. Þá lét Nonni sko ekki á sér standa heldur kom hver á fætur öðrum þannig allir voru orðnir dauðleiðir á honum Nonna. Þá gall í góðum manni úti í sal: "Þú þarft nú ekki að misnota hann Nonna þó það hafi staðið á honum áðan".
Eigið góða helgi
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 11:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.11.2007 | 11:01
Vísurnar hennar Bjargeyjar Arnórsdóttur
Badda er vön svona hagyrðinga-uppákomum og oft verið eina konan við borðið en varð á orði þegar hún sá þátttakendur kvöldsins:
Með körlum oftast er ég ein
við yrkinganna borðin.
Nú sé ég Hjört á sömu grein
sá má vanda orðin.
Eurovision:
Finnland stóri staðurinn
stolt með keppni sína.
Makkarauði maðurinn
mun þar bjartast skína.
Vegagerð:
Sældin hvíld á því öll
að aka vítt um láðið,
ótal vegir undir fjöll
er því besta ráðið.
En Vestfirðirnir vita menn
virkjað augun geta,
og fegurðina flestir enn
framar öðru meta.
Átthagarnir:
Um átthagana oft ég kveð
eins og dæmin sýna.
Á þá besta máta með
megi sólin skína.
Burður:
Gott er sínar gersemar
að geta borið keikur
fjarri mörkum fátæktar
og finnast ævin leikur.
En betra andans aðalsmark
alltaf með sér bera,
geta þolað heimsins hark
hlýtt úr köldu gera.
Kosningar:
Blásið í lúðra á fjögra ára fresti
fæst ekki í hryðjunum uppstytta nein,
kallað til funda að kaftala gesti
kosningaloforð er íþróttagrein.
Um efndirnar þýðir nú ekki að tala
því ýmislegt getur þær truflað og skemmt
ef hópa af gæðingum hægt er að ala
finnst heimskum að tilveran gæti vel stemmt.
Kosninganna kraftur er
kjörið tækifæri
í áframhald að efna sér
sem eitthvað betra væri.
Vorið:
Gáska lífsins glöggt ég skil
gælir sól við stráin.
Vaknar sterk í vorsins yl
vængjatakaþráin.
Kinnastaðaá 1. apríl:
Áin rennur, af sér spennir fjötra,
það er sól og það er vor
þeysöm gjóla hvetur spor.
Vornótt undir Vaðalfjöllum:
Birtan er á bak við fjöllin
blundar allt um næturstund,
konungleg er klettahöllin
kyrrðin vefur mel og grund.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)