Færsluflokkur: Dægurmál
30.7.2008 | 11:19
Hélt að ferðamenn væru svo vistvænir
Hér sannast það enn og einu sinni hvað mikill ágangur ferðamanna er slæmur fyrir umhverfið. Einnig er það mjög hjákátlegt að sjá þá sem þykjast vera umhverfisvænir henda rusli á víðavangi.
Sjálfskipaðir umhverfisverndarhópar vilja fá þrjár milljónir ferðamanna hingað á ári... hmmmm, eigum við ekki aðeins að hugsa okkur um hvort við viljum það.
Fossinn sem gleymdist | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
25.7.2008 | 08:44
Athygli takk
Ákvað að gera mitt til að reyna að gefa þessum frábæru stelpum meiri athygli. Þær eru að standa sig svo langtum framar öllum vonum miðað við að æfa í 10 daga og lenda í riðli með þessum sterku liðum. Nú er bara að taka síðasta leikinn og komast í milliriðil
Til hamingju stelpur með árangurinn sem náðst hefur nú þegar.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.7.2008 | 16:28
Gísli Súrsson tekur á móti gestum á Auðabæ í Geirþjófsfirði.
Gönguhátíðin Svartfuglinn hefst á morgun fimmtudag, 24. Júlí og stendur til sunnudagsins 27. Júlí. Á hátíðinni er boðið upp á göngur með leiðsögn auk þess sem boðið er upp á ýmsar uppákomur og viðburði. Nánar um göngurnar hér.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.7.2008 | 12:02
Æji, þið stafsetningar "sérfræðingar"
Verð að væla smávegis núna, það er svo ótrúlega, ótrúlega, ótrúlega oft sem maður sér málfars- og stafsetningarvillur hér á mbl, sem og á öðrum vefsíðum sem manni finnst að ættu að hafa þetta í lagi.
Í þessu tilfelli þá segir maður "þar af leiðandi" ekki "þar að leiðandi", þetta er afleiðing ekki aðleiðing, koma svo.... hugsa smá áður en þið skrifið fréttirnar.
Pistorius keppir ekki á Ólympíuleikunum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt 21.7.2008 kl. 09:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
11.7.2008 | 15:31
Minni á öldungamót UDN í frjálsum
Ef það skyldu nú einhverjir keppnisglaðir öldungar rekast hér inn og hafa áhuga á að rifja upp héraðsmóta stemninguna frá því í gamladaga þá hefur UDN (Ungmennasamband dalamanna og norður-breiðfirðinga) skipulagt frábæra dagskrá helgina 12. og 13. júlí, sjá hér um öldungamótið og hér um hæfileikakeppnina .
Áfram Afturelding!!
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.7.2008 | 10:56
Öldungamót UDN í frjálsum íþróttum
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 14:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.7.2008 | 10:54
Bæjarhátíð í Búðardal
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 14:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.7.2008 | 10:42
Öldungamót UDN í frjálsum íþróttum
Öldungamót UDN í frjálsum íþróttum er einn liður í fjölskylduhátíðinni
Heim í Búðardal" 12. júlí 2008
Keppnin hefst kl. 12:00 á íþróttavellinum
Tilefnið er: 90 ára afmæli UDN,
en Ungmennasamband Dalamanna var stofnað árið 1918
Keppnisrétt hafa: Konur fæddar 1978 og fyrr og karlar fæddir 1973 og fyrr
Keppnisgreinar:
Kúluvarp, kringlukast, spjótkast,
lang og/eða þrístökk, 100m og 1.500m hlaup.
aðrar greinar eftir pöntun" sjá http://www.udn.is/
Mætum á svæðið og hittum að nýju gamla" vini, og líka nýja
Gott er að tilkynna þátttöku á udn@udn.is, eða í síma 847-9974 (Margrét)
Annað í boði þennan dag: leiktæki, leikir, hæfileikakeppni, varðendur með söng,
tónlistardagskrá, markaðir, víkingar og í lokin bryggjuball við höfnina.
Nánar um bæjarhátíðina á
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.7.2008 | 10:39
Öldungamót UDN laugardaginn 12.júlí, hæfileikakeppni o.fl.
Ef það skyldu nú einhverjir keppnisglaðir öldungar rekast hér inn og hafa áhuga á að rifja upp héraðsmóta stemninguna frá því í gamladaga þá hefur UDN (Ungmennasamband dalamanna og norður-breiðfirðinga) skipulagt frábæra dagskrá helgina 12. og 13. júlí, sjá hér um öldungamótið og hér um hæfileikakeppnina .
Áfram Afturelding!!
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.7.2008 | 15:48
Sunnudagsbíltúr í Glym á sunnudaginn 6.júlí
Staðarhaldarar á Hótel Glym eru Jón Rafn Högnason og Hansína B. Einarsdóttir, sem bæði eru ættuð úr Árneshreppi. Þau hafa rekið Hótel Glym með miklum myndarbrag frá árinu 2001.
Kaffihlaðborðið á sunnudag verður milli 14 og 18 og er þetta frábært tækifæri til að gera allt í senn: Hitta Strandamenn úr öllum áttum, njóta ljúffengra veitinga og skemmtilegrar dagskrár og leggja góðu máli lið.
Hótel Glymur stendur á frábærum útsýnisstað í kjarri vaxinni hlíðinni ofan við Saurbæjarkirkju á Hvalfjarðarströnd, rétt vestan við Ferstiklu. Það tekur um 40 mínútur að keyra frá Reykjavík að Hótel Glym með því að fara Hvalfjarðargöngin en um það bil 1 klukkustund og 10 mínútur að keyra Hvalfjörðinn.
Látið endilega berast meðal Strandamanna og annarra vina Árneshrepps að leiðin liggi í Hvalfjörð á sunnudaginn.
Minni á söfnun Félags Árneshreppsbúa til styrktar Guðmundi Þorsteinssyni á Finnbogastöðum. Reikningsnúmer: 1161-26-001050 Kennitala: 4510892509
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 15:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)